Nú er ég alveg að missa mig í því að skoða ræktarföt á netinu, mig dauðlangar í allt nýtt!
Akkúrat núna á ég tvö pör á af buxum og eiginlega bara eitt stykki þar sem aðrar buxurnar eru alltaf að leka niður..! Ég á 3 boli sem ég skiptist á að nota og einn sem ég nota ef ég hef gleymt að þvo hina en þegar maður fer í ræktina sex sinnum í viku þá verður þetta fljótt að verða þreytt!
Mig langar í svo mikið frá öllum merkjum en er sérstaklega að missa mig yfir nike íþróttaskóm, langar svo í! Sem betur fer á kellan afmæli bráðum svo vonandi er hægt að gefa gooott hint á kallinn;) Annars hef ég alveg komist að því að það er skemmtilegra að vera ánægður með fötin sem maður er í í ræktinni því þá verður maður ósjálfrátt sáttari með sjálfan sig, alla vega þannig í mínu tilviki svo nú verður reynt að bæta aðeins í safnið!
Var að rifja upp hvernig ég var fyrst þegar ég labbaði inn í Átak til einkaþjálfarans: Var í bol af kærastanum og í gömlum útvíðum teygju'ræktar'buxum sem voru að rakna upp, með gat í klofinu og rifnar að neðan;) Ég var í eldgömlum hvítum (voru einu sinni hvítir þegar ég fékk þá 10 árum áður í 9 bekk!) adidas skóm og leið ekkert sérstaklega vel með sjálfa mig... Tala nú ekki um hvað mér var heitt þar sem bómull er ekkert rosalega góður í hita og svita;) Óó skemmtilegu tímar...
|
Óó svo flottar 2xu buxur, kaupi þessar næst í fjólubláu! |
|
Dauðlangar í svona buxur, hrifin af svona munstri!
|
|
Þessar eru á leiðinni til mín!:) |
|
Finnst eitthvað svo flott við þessar! |
|
Ætla að fá mér svona næst! |
|
Langar í svarta líka |
|
Svo flottir! |
|
Langar í alla liti! |
|
Langar í bol með svona baki þar sem toppurinn sést;) |
|
Bucurnar! |
|
Langar í svona bleika vafninga;) |
|
So pretty! |
|
Vera í stíl;) |
Svo langar mig ótrúlega mikið í toppa frá Victoria secret sem kallast incredible! Fá mjög góða dóma, flottur stuðningur og eiga að halda góðu formi á brjóstunum svo þau verða ekki þrýstin og svona 'uniboob';) Eiga að vera mjög þægilegir og eru til í svo mörgum munstrum og litum, panta mér svona einhverntímann;)
|
Þessi eru geggjuð og ég ætla mér að fá svona:P |
Jæja segji þetta gott í bili, svo miklu meira sem mig langar í, svo erfitt að vera á svona þörf þegar þetta er allt svona dýrt! En þess vegna verður það merkilegra og skemmtilegra þegar maður fjárfestir í einhverju svona;)
Þangað til næst, höldum áfram að vera dugleg!:)
Kv. Amanda
Engin ummæli:
Skrifa ummæli